SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir11. september 2026

BESTU VINIR - BARNABÓKAVERÐLAUN GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR 2026

Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur og Blær Guðmundsdóttir teiknari og höfundur hrepptu Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir bókina Bestu vinir, (útgefandi Bókabeitan). Eva Rún hefur skrifað fjölda bóka frá 2011 og stofnaði Svakalegu sögusmiðjuna, ásamt Blævi, en smiðjurnar eru skapandi vettvangur fyrir krakka sem vilja skrifa og/eða teikna sögur. Smiðjurnar hafa fast aðsetur í Borgarbókasafni Reykjavíkur og heimsækja bókasöfn um land allt.
 
Verðlaunabókin fjallar um dreng og stúlku sem takast saman á við dularfulla ráðgátu og óvænt vinátta þróast með þeim. Hún er prýdd afar skemmtilegum teikningum. 
 
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:
 
„Dómnefnd telur að Bestu vinir geti fallið ungum lesendum vel í geð og veitt þeim lestraránægju um leið og sagan sýni fram á gildi vináttu og fordómaleysis án þess að boðskapnum sé haldið sérstaklega að lesandanum."
 
Dómnefndina skipuðu Þorgeir Ólafsson, Ragnheiður Gestsdóttir og Katrín Lilja Jónsdóttir.
 
Á myndinni (sem er tekin af vef Rithöfundasambands Íslands) sjást höfundarnir ásamt dómnefnd og Hildi Björnsdóttur borgarstjóra sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða.
 
Skáld.is óskar Evu Rún og Blævi hjartanlega til hamingju með verðlaunin og bókina!
 
 

 

Tengt efni