SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir∙ 1. október 2026

NÝ SKÁLDSAGA EFTIR GERÐI KRISTNÝJU

 

Nú streyma ný skáldverk á markaðinn og í dag kemur út skáldsaga Gerðar Kristnýjar, Míkadó, en í henni er sögð saga frá Reykjavík níunda áratugarins. Í kynningu útgefanda segir: „Með ísmeygilegri kímni og hnífskörpu innsæi er dregin upp lýsing á heimi sem stundum virðist kæfandi en stundum barmafullur af möguleikum.“

Á bókarkápu er nánari lýsing:

Fjölskylda ellefu ára stelpu reynir hvað hún getur til að liðast ekki í sundur. Dagarnir fara í að sýna heiminum að allt sé í lagi. Á meðan stelpan fetar sig fram hjá gildrum á heimilinu gerast ævintýrin utan þess.

 

Við óskum Gerði Kristnýju til hamingju með nýju bókina og bendum á að hér á vefnum má lesa ýmislegt efni sem tengist hennar höfundarverki, til dæmis ritdóma um ljóðabækurnar Jarðljós, Blóðhófnir, Drápu, og tvo dóma um Sálumessu (sjá hér fyrir neðan). Þá má einnig lesa ritdóm um tímamótaverkið Myndin af pabba. Saga Thelmu og eru þá ótaldar ýmsar fréttir af verkum hennar, viðurkenningum og höfundarferli. Prófið bara að ugla (gúgla) nafnið hennar!

 

Tengt efni