SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙10. október 2026

ÁSTIN Á TÍMUM ÞRIÐJU VAKTARINNAR

Brátt kemur út ný jólabók eftir Ásu Marinu. Sú heitir Öruggt skjól á Eskifirði. Þetta er þriðja ástarsaga hennar sem tengist jólunum, þær tengjast lauslega og allar eru þær með skemmtilega stuðluðum titli.

Að þessu sinni er umfjöllunarefnið þriðja vaktin og áhrif hennar á hjónabandið, fjölskyldulífið og jafnréttið, ásamt ástinni auðvitað. Það má með sanni segja að þriðja vaktin sé í hámarki þegar líða fer að jólum.  

"Á sama tíma og dagarnir fyllast af viðburðum er mikið álag í vinnunni og svo þarf að undirbúa sjálf jólin, kaupa í matonn, skreyta húsið, kaupa tré, skreyta bévítans tréð, sem við horfum svo á yfir hátíðardagana visna og deyja..." (17).

Fyrsta vaktin er að vera í vinnu og fá fyrir það laun, önnur vaktin felst í heimilisstörfum og að sjá um börn og bú í sameiningu en þriðja vaktin felst í vera framkvæmdastjóri heimilisins. Sýna fyrirhyggju og hagsýni, redda pössun, sækja og skutla, hafa yfirsýn á fatastærðir heimilisfólks, muna eftir merkisdögum, starfsdögum, tilboðsdögum, tannlæknatímum, kaupa jólagjafir, skreyta, útbúa skógjafir, vita hvað er til í ísskápnum og svo endalaust framvegis. Þriðja vaktin krefst orku og einbeitingar, er launalaus og hún stendur allan sólarhringinn. Þetta er ósýnileg vinna og ósýnilegt álag, stundum kallað hugræn byrði (mental load) og oft er stundum stutt í meðvirknina (sá sem ekki veit hvað meðvirkni er, gerir sjálfum sér og heiminum stóran greiða með að gúgla það núna).

Svo vill til að oftast eru það konur sem taka þriðju vaktina. En er það útaf því að konur eru skipulagsfrík og karlar bara slakir? Er það svo einfalt? Ýmsar rannsóknir sýna að álag á konum vegna heimilisstarfa og ábyrgðar á heimili og fjölskyldu hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra og framgang í starfi, veldur streitu og leiðir jafnvel til kulnunar. Svo þetta er samfélagslegt mál, eitt af lykilatriðum varðandi t.d. jafnrétti á vinnumarkaði. Það er gott að Ása Marin tekur þetta efni upp á sína arma. 

Þriðja vaktin er að sliga Kristínu, fertuga þriggja barna móður, sem samhliða fjölskyldulífinu keppir um stöðuhækkun við "mannbarn", tvítugan framapotara og auðvitað á hún þar engan sjens. Eiginmaðurinn Skúli tekur öllu létt og setur bumbuboltann og vinahittinginn í forgang enda er Kristín vön að sjá um allt. Pirringurinn á milli þeirra vex með degi hverjum og loks kemur að því að Kristín fær nóg og stingur af frá öllu gillimojinu, til æskuvinar síns á Eskifirði. Mjög er nostrað við lýsingar á Eskifjarðardvölinni og Kristín styrkist og hressist með degi hverjum og sér hlutina í skýrara ljósi. Hver hefur ekki gott af smá orlofi úti á landi?

Í framvindu sögunnar sést vel sú óheillaþróun sem varð í sambandi þeirra Kristínar og Skúla. Hún tók alla ábyrgðina á fjölskyldunn og heimilinu á sínar herðar og hlustaði ekki á neinar tillögur eða lausnir frá honum. Hann sá að hún hafði tekið stjórnina og ábyrgðina svo hann var stikkfrí að mestu, sinnti bara þeim verkefnum heimilisins sem honum voru falin og sumum ansi slælega. Smátt og smátt týndist ástin í öllum skyldunum, kröfunum og látunum. Kunnuglegt mynstur?

Tveir aðrir karlmenn koma við sögu ásamt vinkonum Kristínar og gegna því hlutverki að spegla tilfinningarnar og sýna fleiri hliðar málsins. Hrafnkell er æskuvinurinn góði sem sjálfur er nýskilinn og Flóki, einhleypur vinur hans, er afskaplega heillandi og lofar góðu. Umbreytingin á Skúla i seinni hluta sögunnar er hins vegar býsna skjót og ekki alveg sannfærandi. En ákvörðun Kristínar í lokin byggir á henni. Þarf virkilega að stinga af og hóta makanum öllu illu til að augun opnist og breytingar verði? Svo virðist vera:

"Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem þú heyrir að mér finnst eitt og annað í ólagi við okkar samband, segi ég. Þú veist hvað sagt er, fyrst reynir fólk að ræða um hlutina, svo nöldrar það þegar ekkert breytist en að lokum þagnar það því það sér að það er enginn áhugi á breytingum..." (177).

Í hnotskurn: Býsna hæg saga þar sem nostrað er við smáatriði en lýsir vel misskiptri ábyrgð kynjanna á þriðju vaktinni og afleiðingum þess á fjölskyldulífið og blessaða ástina. Ljóst er að bæði þurfa karlar að taka meiri ábyrgð og konur að treysta þeim fyrir henni til að allt verði betra í heimi hér.

 

 

 

Tengt efni