SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Vigdís Grímsdóttir

Vigdís Grímsdóttir er fædd í Reykjavík þann 15. ágúst 1953. 

Vigdís lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1973, BA prófi í íslensku og bókasafnsfræði frá Háskóla Íslands 1978 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands 1982. Hún stundaði kandidatsnám í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands 1984–1985.

Vigdís starfaði sem grunnskóla- og framhaldsskólakennari í Reykjavík og Hafnarfirði til 1990 en hefur síðan nær eingöngu fengist við ritstörf.  

Fyrsta bók Vigdísar, smásagnasafnið Tíu myndir úr lífi þínu, kom út árið 1983 og síðan hefur hún sent frá sér ljóðabækur, annað smásagnasafn og skáldsögur, þar af eina barnabók. Leikgerðir við tvær skáldsagna hennar hafa verið settar upp á Íslandi og í Svíþjóð. Á nýársdag 2004 var kvikmynd Hilmars Oddssonar Kaldaljós frumsýnd, en hún er byggð á samnefndri skáldsögu Vigdísar frá 1987.

Vigdís hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín og bækur hennar hafa verið þýddar á önnur mál. 

Vigdís Grímsdóttir á tvö uppkomin börn.


Ritaskrá

  • 2023 Ævintýrið
  • 2019  Systa. Bernskunnar vegna
  • 2016  Elsku Drauma mín
  • 2013  Dísusaga: Konan með gulu töskuna
  • 2011  Trúir þú á töfra
  • 2007  Sagan um Bíbí Ólafsdóttur
  • 2005  Þrenningin
  • 2003  Þegar stjarna hrapar
  • 2002  Hjarta, tungl og bláir fuglar
  • 2001  Frá ljósi til ljóss
  • 2000  Þögnin
  • 1998  Nætursöngvar
  • 1996  Z: Ástarsaga
  • 1996  Gauti vinur minn
  • 1994  Grandavegur 7
  • 1992  Stúlkan í skóginum
  • 1991  Lendar elskhugans
  • 1990  Minningabók
  • 1989  Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón
  • 1987  Kaldaljós
  • 1985  Eldur og regn
  • 1983  Tíu myndir úr lífi þínu: Sögur um þykjustuleiki og alvörudrauma

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2017  Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
  • 2012  Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrir Trúir þú á töfra?
  • 2007  Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir Söguna um Bíbí Ólafsdóttur
  • 2001  Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Þögnin 
  • 1994  Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Grandaveg 7
  • 1993  Davíðspenninn fyrir Stúlkan í skóginum
  • 1992  Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
  • 1990  Menningarverðlaun DV fyrir Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón

  

Tilnefningar

  • 2023  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Ævintýrið
  • 2013  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Dísusögu: konan með gulu töskuna
  • 2013  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Dísusögu: konan með gulu töskuna
  • 2007  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Söguna um Bíbí Ólafsdóttur
  • 1997  Til Norrænu barnabókaverðlaunanna fyrir Gauti vinur minn
  • 1996  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Z : ástarsögu
  • 1996  Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Grandaveg 7
  • 1994  Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Stúlkuna í skóginum

 

Þýðingar

(í vinnslu)

 

Tengt efni