LEIKRIT EFTIR ELÍSABETU JÖKULSDÓTTUR FRUMSÝNT Í BORGARLEIKHÚSINU Á FÖSTUDAGINN
Hinn framsækni leikhópur KRIÐPLEIR frumsýnir á föstudaginn 28. febrúar leikverk sem ber yfirskriftina INNKAUPAPOKINN. Verkið er spunnið í kringum leikritið MUNDU TÖFRANA sem Elísabet Jökulsdóttir skrifaði fyrir ríflega þrjátíu árum en er fyrst núna að komast á fjalirnar.
Í kynningu Borgarleikhússins segir meðal annars:
Í verki Elísabetar, sem hún skrifaði fyrst árið 1992, leita Ella og Trúðurinn bróðir hennar að „Barninu“ til þess að færa því tár svo það geti syrgt pabba sinn og haldið áfram eigin tilveru. Handritið hefur verið hálfgert olnbogabarn í íslensku leikhúsi í rúmlega 30 ár og aldrei ratað á svið þrátt fyrir þrotlausar tilraunir höfundar og stöðug endurskrif. En í kjölfar þess að Ragnar Ísleifur Bragason, meðlimur í leikhópnum Kriðpleir frétti af þrautargöngu Elísabetar hefur ný von kviknað því Ragnar vill óður og uppvægur koma Elísabetu, frænku sinni, til bjargar með hjálp félaga sinna úr leikhópnum. Sumir gætu sagt að þetta væri eins og að fara úr öskunni í eldinn. Það er að minnsta kosti ekki vandræðalaust að lífga við gamlan galdur …
Leikhópurinn Kriðpleir er einn af virkari hópum íslensku sviðslistasenunnar. Hópurinn hefur samið um tug verka fyrir leiksvið og útvarp, sýnt þau innanlands sem utan og hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímunnar.
Hópurinn er skrifaður sem meðhöfundur Elísabetar að verkinu og einnig fyrir leikstjórn ásamt Bjarna Jónssyni. Leikarar eru Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Saga Garðarsdóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir.
Óhætt er að búast við áhrifamikilli og skemmtilegri sýningu, eins og alltaf þegar Elísabet Jökulsdóttir á í hlut (skemmst er að minnast SAKNAÐARILMS í Þjóðleikhúsinu og BLÓÐUGU KANÍNUNNAR í Tjarnarbíó), og hægt er að tryggja sér miða á heimasíðu Borgarleikhússins.
Þær Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir sjá einnig um leikmynd og búninga, tónlistin er eftir Benna Hemm Hemm og um lýsingu sér Ólafur Ágúst Stefánsson. Dramatúrg sýningarinnar er Snæfríður Sól Gunnarsdóttir.