SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 7. september 2026

MIKILVÆGUR GAGNAGRUNNUR

Vefurinn skáld.is stækkar með ári hverju. Á vefnum er að finna efni sem ritað er af ástríðu og fagmennsku; greinar, viðtöl og ritdóma. Hægt en örugglega byggist upp mikilvægur gagnagrunnur um íslenskar skáldkonur og verk þeirra.  Stutt samantekt á t.d. því sem hefur verið skrifað eða safnað saman og birt á vefnum hingað til um hina merku skáldkonu, Álfrúnu Gunnlaugsdóttur,  dregur ýmislegt fróðlegt fram í dagsljósið. 

Fyrst er að nefna yfirgripsmikla grein eftir Soffíu Auði Birgisdóttur, Mannkynssagan í formi samtímaskáldsagna, um Yfir Ebrófljótið og önnur skáldverk Álfrúnar sem birtist fyrst í Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2002. Og ritdóm hennar um Hringsól, Hvað var af stelpunni Ellu?.

Einnig fjóra ritdóma, sjá TENGT EFNI hér fyrir neðan.

 

 

 

Tengt efni