SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir12. september 2026

MIKILVÆGUR GAGNAGRUNNUR - NÍNA BJÖRK

Vefurinn skáld.is stækkar með ári hverju. Á vefnum er að finna efni sem ritað er af ástríðu og fagmennsku; s.s greinar, viðtöl og ritdóma. Hægt en örugglega byggist upp mikilvægur gagnagrunnur um íslenskar skáldkonur og verk þeirra.  Stutt samantekt á t.d. því sem ritstjórnarkonur  og fleiri hafa skrifað og birt á vefnum hingað til um hina merku skáldkonu, Nínu Björk Árnadóttur (1941-2000), dregur ýmislegt fróðlegt fram í dagsljósið. 

Fyrst er að nefna tvær greinar eftir Jónu Guðbjörgu Torfadóttur. Sú fyrri er um ljóðabókina Svartur hestur í myrkrinu (útg. 1982): Ég gleypti allar svefnpillurnar og drakk allt koníakið og svo er ég bara hérna. Hin greinin heitir Raddir af jaðrinum, þar er rakin þróun í ljóðum hennar á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar en þá sendi skáldkonan frá sér fimm ljóðabækur.

Soffía Auður Birgisdóttir fjallaði um ljóðaúrval Nínu Bjarkar sem út kom árið 2000: Skáldskaparheimur Nínu Bjarkar. Blómið sem þú gafst mér

Silja Aðalsteinsdóttir ritaði grein stuttu eftir andlát Nínu Bjarkar,  Skáld lífsóttans.

Þá var birt á vefnum brot úr ritdómi um ljóðabókina Fyrir börn og fullorðna, sem út kom 1975, sem inniheldur 30 trúarleg ljóð um Jesú Krist. Og úr ritdómi um Undarlegt er að spyrja mennina (1968).

Einnig hefur hún nokkrum sinnum átt ljóð vikunnar.

Skemmtileg mynd af Nínu Björk birtist í Alþýðublaðinu, þann 4. desember 1987 sem greint er frá á vefnum, sjá hér.

Ljósm. af Nínu Björk: alchetron.com

 

 

Tengt efni