SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir∙28. september 2026

MIKILVÆGUR GAGNAGRUNNUR - SVAVA JAKOBSDÓTTIR

 

Á vefnum okkar er að finna efni sem ritað er af ástríðu og fagmennsku; greinar, viðtöl og ritdóma. Hægt en örugglega byggist upp mikilvægur gagnagrunnur um íslenskar skáldkonur og verk þeirra. Á vefnum er til að mynda að finna fjölda greina um verk Svövu Jakobsdóttur, auk færslunnar um hana í Skáldatalinu.+

Nefna má greinina FANTASÍA OG KARNIVAL Í SAGNAHEIMI SVÖVU JAKOBSDÓTTUR eftir Sigríði Albertsdóttur, LÍFIÐ, LEITIN, LISTIN. SVAVA JAKOBSDÓTTIR 1930-2004 og LÍFSVON Í DEYJANDI SKÖPUNARVERKI. UM GUNNLAÐAR SÖGU eftir Soffíu Auði Birgisdóttur, STABAT MATER DOLOROSA. UM GUNNLAÐAR SÖGU eftir Dagnýju Kristjánsdóttur og ritdóm Súsönnu Svavarsdóttur um smásagnasafnið UNDIR ELDFJALLI. 

Fleiri smágreinar og fréttir sem tengjast Svövu og verkum hennar má einnig lesa hér á vefnum.

Tengt efni