SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir19. maí 2026

ERINDI GUÐRÚNAR UM „ERINDI“ GUÐRÚNAR - Á LJÓÐAÞINGI

Hér á eftir fer erindi Guðrúnar Steinþórsdóttur um ljóðið „Erindi“ eftir Guðrúnu Hannesdóttur, flutt á ljóðaþingi til heiðurs skáldkonunni sem haldið var í Gunnarshúsi laugardaginn 16. maí:

 

Sæl öll og til hamingju með þennan ljóðadag!

Ég ætla að byrja á því að lesa tilvitnun sem hljómar á þessa leið:

„Ljóð þarf að lesa hægt, það þarf jafnvel að lesa bilið milli orðanna. Það er eðli þeirra að kalla fram skilning og þegar best lætur, skyndilega uppljómun eða leiftur, þegar við gerum okkur ljós náin tengsl okkar – hvort heldur við söguna, landið eða hvort annað. “

 

Þessi orð lét Guðrún Hannesdóttir, stjarna dagsins, falla í viðtali sem Steinunn Inga Óttarsdóttir tók við hana og birtist á Skáld.is árið 2020. Ummælin rötuðu samstundis á glæru hjá mér, sem ég hef iðulega sýnt nemendum þegar ég kenni ljóð og ljóðgreiningu, bæði í háskóla og framhaldsskóla.

Þótt Guðrún tali þarna almennt um ljóðalestur eiga orð hennar einstaklega vel við eigin skáldskap. Hann er svo marglaga, kyngimagnaður og upptendrandi að nauðsynlegt er að lesa ljóðin hennar upphátt, staldra við hvert orð og njóta töfranna.

Það er alltaf fögnuður þegar Guðrún sendir frá sér bók því það er ávísun á ljóðaveislu af bestu gerð. Það er því ógjörningur – kannski sérstaklega ef kona er ljóðelsk vog – að velja sér aðeins eitt uppáhaldsljóð eftir hana. Fyrir val dagsins ákvað ég því að opna ljóðasafnið fína og velja ljóðið sem fyrst blasti við. Það reyndist vera einstaklega fallegt ljóð sem nefnist „Erindi“ og fjallar um farfuglana, sem mér finnast svo ótrúlega magnaðir. Ljóðið birtist í ljóðabókinni Slitur úr orðabók fugla og er svona:

 

Erindi

enn
koma farfuglarnir
á hverju vori
um langan veg

kvikir
eins og kompásnál
með lífsins þyt
í vængjaslætti

komnir
til að skapa
himin í höfði þínu
jörð í brjósti þínu
ljós í hjarta þínu

einu sinni enn

 

Myndina tók Unnur Guttormsdóttir

 

Tengt efni