Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 5. desember 2022
TILNEFNINGAR TIL FJÖRUVERÐLAUNA
Fyrir rétt um stundu var tilkynnt hvaða bækur hlutu tilnefningar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi.
Eftirfarandi bækur og höfundar hlutu tilnefningar og er þeim óskað innilega til hamingju með árangurinn:
Í flokki fagurbókmennta:
- Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur
- Urta eftir Gerði Kristnýju
- Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur
Í flokka barnabóka:
- Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur
- Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur
- Héragerði. Ævintýri um súkkulaði og kátínu eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur
Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:
- Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar eftir Önnu Sigríði Þráinsdóttur og Elínu Elísabetu Einarsdóttur
- Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur
- Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
Umsagnir dómnefnda má nálgast á vefsíðu Fjöruverðlauna.