MIKILVÆGUR GAGNAGRUNNUR - KRISTÍN MARJA
Vefurinn skáld.is stækkar með ári hverju. Á vefnum er að finna efni sem ritað er af ástríðu og fagmennsku; s.s greinar, viðtöl og ritdóma. Hægt en örugglega byggist upp mikilvægur gagnagrunnur um íslenskar skáldkonur og verk þeirra. Stutt samantekt á t.d. því sem hefur verið skrifað og birt á vefnum hingað til um hina merku skáldkonu, Kristínu Marju Baldursdóttur (f. 1949), dregur ýmislegt fróðlegt fram í dagsljósið.
Kristín Marja hefur sent frá sér hverja kvennasöguna á fætur annarri frá því Mávahlátur kom út 1995. Í fyrra átti hún því 30 ára rithöfundarafmæli.
Hér má sjá umfjöllun skáld.is um verk hennar:
Ég færi þér fjöll 2024 - Ástin og efinn
Gata mæðranna 2020 - Tortímandi afl fyrir konur
Frelsun heimsins 2019 - Greinar um bókmenntir, listir og samfélag
og Ekki of seint að frelsa heiminn
Óreiða á striga 2007 - Þvottakonur heimsins
Karitas. Án titils 2004 - Stórróman um listakonu I
Karlsvagninn 2009 - Mæður og dætur
Kular af degi 1999 - Saga sem leynir á sér
Auk æviágrips og ritaskrár og yfirlits yfir þýðingar á verkum hennar yfir á önnur tungumál, sjá TENGT EFNI:
(Ljósm. hnuplað af vefnum)



