SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 2. desember 2023

TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA 2023

.

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2023 voru kynntar við hátíðleg athöfn í Eddu. Hér fyrir neðan má sjá tilnefningarnar ásamt umsögnum dómnefnda.

Verðlaunin verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Formenn dómnefndanna fjögurra, Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Kristínu Ingu Viðarsdóttur, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Félag íslenskra bókaútgefenda kostar verðlaunin.

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 35. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna. Sambærileg verðlaun eru veitt af útgefendafélögum í Svíþjóð og Noregi. Sænsku verðlaunin eru jafn gömul þeim íslensku, voru stofnuð árið 1989, og bera nafnið Augustpriset. Norsku verðlaunin heita Brageprisen. Þau voru stofnuð árið 1992.

Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.

 

FLOKKUR SKÁLDVERKA

Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur. Útgefandi er Mál og menning. Í umsögn dómnefndar segir að bókin sé margslungin, þétt og spennandi og með mjög vel heppnaða persónusköpun og þá er náttúrunni gerð góð skil á athyglisverðan hátt. Alltaf er það gaman að heyra þegar náttúran spilar hlutverk í skáldskapnum. 

 

 


DJ Bamb
i eftir Auði Övu Ólafsdóttur tilnefningu. Útgefandi er Benedikt bókaútgáfa. Í umsögn dómnefndar er bókin talin skrifuð að miklu næmni og innsæi þar sem heimspekilegar tilvistarspurningar um mennsku og hlýju er teflt fram. Textinn er auk þess sagður bæði ljóðrænn og kíminn. 

 

 

 

 

Land næturinnar eftir Vilborgu Davíðsdóttur. Úgefandi Mál og menning. Í umsögn dómnefndar er bókin er sögð vel skrifuð og áhugaverð þar sem Vilborg fléttar saman lifandi lýsingu á lífi og ferðum fornmanna okkar Íslendinga. Vilborg kann að sækja í íslenskan sagnabrunn á vandaðan hátt sem fyrr. Við óskum henni hjartanlega til hamingju.

 

 

Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M. Bjarnason. Útgefandi er Veröld. Bókin er sögð vel uppbyggð og fallega skrifuð  ásamt því að hafa frumlegan söguþráður og tengsl við íslenskan þjóðsagnaarf. Til hamingju.

Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl. Úgefandi Mál og menning. Í umsögn dómnefndar er þessi söguleg skáldsaga sögð full af húmor og orðgnótt. Hana einkennir rífandi frásagnargleði, listfengi bæði í stíl og söguþræði. Eiríkur tekst á við stórar heimspekilegar spurningar með eftirtektarverðum hætti.

Dómnefndina skipuðu: Guðrún Birna Eiríksdókttir, Hlynur Páll Pálsson og Steingerður Steinarsdóttir en hún var einnig formaður dómnefndar.

 

BARNA- OG UNGMENNABÆKUR

Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfundur
Bannað að drepa. Útgefandi: Mál og menning

Í umsögn dómnefndar segir að bókin sé stórkostlega fyndin, einlæg og átakanleg frásögn sem spilar á allan tilfinningaskalann. Sagan, sem tekur áreynslulaust á málefnum líðandi stundar, er skemmtilega myndlýst, auðlesin og persónusköpun höfundar einstök.

Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur
Vísindalæsi - Hamfarir.
Útgefandi: JPV útgáfa

Hnyttin og fræðandi bók um áhrifamátt hamfara, svo sem tilurð tungls og jarðar, þróun súrefnis og örlög risaeðla. Einstaklega vel myndlýst frásögn sem hvetur til umhugsunar um örlög jarðarinnar og hvort við getum enn haft einhver áhrif.

 

 

Hildur Knútsdóttir
Hrím.
Útgefandi: JPV útgáfa

Vel skrifuð og heillandi þroskasaga sem fjallar um erfiða lífsbaráttu, hugrekki, ástina og trúna á sjálfan sig í heimi sem er svo nálægt okkur en samt svo fjarri. Höfundur býr til mjög trúverðugan hugarheim og tekst að halda lesandanum spenntum frá upphafi til enda.

 

 

 

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
Mömmuskipti.
Útgefandi: Mál og menning

Frumleg saga sem fjallar á meinfyndinn en einlægan hátt um líf barna hinna svokölluðu áhrifavalda. Hvers virði er einkalífið? Er hægt að setja það upp í súlurit og kökur? Hve mikið ætlum við að láta snjalltækin stjórna lífi okkar?

 

 

 

 

Embla Bachmann
Stelpur stranglega bannaðar!
Útgefandi: Bókabeitan

Einföld en áhrifarík saga sem fjallar á lipran hátt um flóknar tilfinningar. Dásamleg og djúp persónusköpun með skemmtilegum lýsingum sem hrífa lesandann með sér. Glæsileg frumraun höfundar.

 

 

Dómnefnd skipuðu: Ásgerður Júlíusdóttir, Hjalti Freyr Magnússon, formaður dómnefndar, og Hrönn Sigurðardóttir Erludóttir.

 

FLOKKUR FRÆÐIRITA OG RITA ALMENNS EFNIS

Þórður Helgason

Alþýðuskáldin á Íslandi - Saga um átök. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag

Tímamótaverk og mikill fróðleikur saman dreginn um efni sem hefur ekki mikið verið fjallað um til þessa. Vel skrifuð bók.

 

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur
Útgefandi: Vaka Helgafell

Áhrifarík bók þar sem Guðrún hlífir hvorki sjálfri sér né öðrum. Skrifuð af ástríðu fyrir efninu og fjallar um ævistarf konu í þágu kvenna.

 

 

 

 

Elsa E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir
Með verkum handanna - Íslenskur refilsaumur fyrri alda
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands

Glæsileg bók og ríkulega myndskreytt. Fallegt og veglegt rit sem vitnar um ríkt menningarstarf kvenna á fyrri tímum. Í bókinni er fjallað á greinargóðan hátt um þann stórbrotna menningararf sem klæðin eru.

 

 

Haraldur Sigurðsson
Samfélag eftir máli - Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi.
Útgefandi: Sögufélag

Glæsilegt verk þar sem höfundi tekst að fjalla um breytinguna úr sveit í borg á aðgengilegan og læsilegan hátt. Vandað yfirlitsverk um skipulagsmál.

Guðmundur Magnússon
Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga.
Útgefandi: Ugla útgáfa

Yfirgripsmikil bók sem byggir á ítarlegri rannsóknarvinnu og skoðun á viðamiklum skjala og bréfasöfnum. Höfundur lætur heimildirnar tala sínu máli og lætur lesanda eftir að draga ályktanir.

Dómnefnd skipuðu: Bessý Jóhannsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndar og Þorvaldur Sigurðsson.

 

BLÓÐDROPINN

Steindór Ívarsson
Blóðmeri.
Útgefandi: Storytel og Sögur útgáfa.

Spennandi frásögn af rannsókn á dularfullum og óhugnanlegum morðum í Reykjavík nútímans, sem tengjast ódæðisverki í fortíðinni. Vel er sagt frá framvindu rannsóknarinnar og hvernig ógnvekjandi atburðir grípa inn í hversdagstilveru fólks, sem virðist ofurvenjulegt. Spennunni er haldið fram á síðustu blaðsíðu.

Stefán Máni
Borg hinna dauðu.
Útgefandi: Sögur útgáfa.

Vel heppnaður spennutryllir þar sem ein litríkasta persóna íslenskra glæpasagna leysir úr flóknu sakamáli í kappi við tímann. Sögunni vindur áfram með myndrænum og áreynslulausum hætti. Sjónarhorninu er einnig beint að óþolandi þjóðfélagsmeini og krefjandi fjölskyldulífi lögreglumannsins. Afraksturinn er vönduð glæpasaga sem heldur lesandanum á tánum frá upphafi til enda.

 

Eva Björg Ægisdóttir
Heim fyrir myrkur
Útgefandi: Veröld

Vel sögð saga með fjölbreyttu, breysku persónugalleríi og slunginni atburðarás. Sögusviðið er áhugavert og sagan er í senn glæpa- og spennusaga, sálfræðitryllir, fjölskyldudrama og íslensk samfélagslýsing á seinni hluta síðustu aldar. Höfundur sáir fjölda efasemda í hug lesanda þannig að hann grunar allt og alla söguna á enda.

 

 

 

Skúli Sigurðsson
Maðurinn frá São Paulo.
Útgefandi: Drápa.

Nýstárleg saga þar sem sögulegum atburðum og raunverulegum persónum úr mesta hildarleik sögunnar er fléttað saman við íslenskt samfélag á 8. áratug siðustu aldar. Höfundur vandar vel til verka og sagan hefur yfir sér trúverðugan blæ þrátt fyrir að atburðarásin sé framandi. Spennandi og grípandi frásögn, sem lesandinn getur vart lagt frá sér fyrr en ráðgátan leysist.

Arnaldur Indriðason
Sæluríkið.
Útgefandi: Vaka Helgafell.

Firnagóð flétta þar sem þræðir spillingar við úrlausn gamals morðmáls vefast saman við tortryggni kaldastríðsáranna og manndráps í nútímanum. Umhverfis- og samfélagslýsingar áhrifaríkar og persónusköpun hreint afbragð.

Dómnefnd skipuðu: Björn Ingi Óskarsson, Kristján Sigurjónsson, formaður dómnefndar, og Mjöll Snæsdóttir.

Við hjá Skáld.is óskum öllum hjartanlega til hamingju.

Tengt efni