SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir17. mars 2026

BÓKASKRIÐA AÐ VORI

Þó svo að ekki sé langt liðið frá hinu árlega jólabókaflóði er ýmislegt spennandi farið að gægjast fram með hækkandi sól. 

Hildur Knútsdóttir hefur sent frá sér hrollvekjuna Irpu. Búið er að þýða söguna yfir á ensku og auk þess er Hildur búin að selja að henni kvikmyndaréttinn. Þá er komin út ný bók í bókaflokknum um systkinin Amelíu og Óliver, eftir Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur og Sigrúnu Öldu Sigfúsdóttur, og nefnist hún Amelía og Óliver fara í bústað.

Sigríður Helga Sverrisdóttir hefur sent frá sér nýja ljóðabók. Hún ber titilinn Úlfamáni og gaf Sigríður Helga bókina út sjálf. Arndís Þórarinsdóttir er einnig að senda frá sér nýja ljóðabók. Hún nefnist Köngurváfa og kemur út hjá Forlaginu næstkomandi fimmtudag. Fyrsta ljóðabók ársins var líklega Litvindar eftir Björgu Örvar.

Þá er ýmislegt í farvatninu. Fyrir skemmstu skrifaði Vilborg Davíðsdóttir undir samning við Forlagið en í haust kemur út óskáldað verk eftir hana sem ber  vinnuheitið Öðruvísi bókin. Þá hafa Lilja Sigurðardóttir og Satu Rämö tekið höndum saman og skrifa nú glæpasögu sem ber finnska heitið Villi korti, eða Wild Card á ensku, en íslenska heitið liggur ekki fyrir. Til stendur að bókin verði sú fyrsta í bókaflokki sem kallast Reykjavíkurmorðin. Loks eru Svikaskáld (Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir) með bók í smíðum en enn er fátt vitað um hvers konar verk er þar á ferð.

Sjálfsagt eru mun fleiri skáldkonur og -kvár að huga að útgáfu eða með verk í smíðum og verður spennandi að fylgjast með þessum gróanda næstu mánuðina! 

 

Mynd: JGT