VEISLA ÞRJÚ EFTIR STEINUNNI SIGURÐARDÓTTUR KOMIN ÚT

Ný skáldsaga eftir Steinunni Sigurðardóttur sætir alltaf tíðindum og nú sendir hún frá sér Veislu þrjú sem er framhald af verðlaunasögunni Ból sem kom út fyrir þremur árum.
Sögunni er þannig lýst á bókarkápu:
Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit: Hvað nú? Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum því allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.
Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.
Við óskum Steinunn Sigurðardóttur til hamingju með nýju bókina og minnum á að hér á vefnum er margt að finna um Steinunni og verk hennar. Nefna má viðtal sem Guðrún Steinþórsdóttir tók við Steinunni og hefur yfirskriftina AÐ LIFA ER AÐ SKRIFA; fjölmarga ritdóma um verk hennar úr ýmsum áttum, t.d. um SKÁLDS SÖGU, BÓL, SYSTU MEGIN, HJARTASTAÐ, JÖKLALEIKHÚSIÐ, GÆÐAKONUR, LJÓÐASAFN: FRÁ SÍFELLUM TIL HUGÁSTA, TÍMINN Á LEIÐINNI, AF LJÓÐI ERTU KOMIN, AF LJÓÐI MUNT ÞÚ VERÐA, HUGÁSTIR, og DIMMUMÓT.
Þá má einnig lesa fræðigreinar um verk Steinunnar, til að mynda grein Dagnýjar Kristjánsdóttur Barnaleikur: Um tráma, minni og gleymsku í JÓJÓ eftir Steinunni Sigurðardóttur og grein Soffíu Auðar Birgisdóttur, „Ef ég kynni að gala galdur." DIMMUMÓT Steinunnar Sigurðardóttur sem heimsslitakvæði;
Hér er ekki allt upp talið og við munum halda áfram að hlaða inn efni í gagnabankann Skáld.is eftir megni og getu!



